Upplifanir

Keramikmálun

Heimsókn á Noztru – keramikmálun.
Þetta virkar þannig að verð á heimsókn fer eftir verði hlutar sem hver og einn málar, flestir hlutirnir okkar eru í kringum 6.000,- kr. Innifalið í verði hlutar er öll málning, verkfæri og tveir tímar í sal, ásamt glerjun og brennslu. Þú sækir hlutinn þinn viku seinna.

 

Við bjóðum upp á að taka á móti stórum hópum alla virka daga.  Um helgar og aðra frídaga eru stærstu hópar sem við tökum á móti 14 manns.

Tökum með heim /
Take away

Komdu á Noztru, Grandagarði 14, veldu þinn leirhlut og liti, og taktu hann með þér heim eða hvert sem er. Þú getur „noztrað“ við hlutinn þinn eins mikið og lengi og þú vilt – algjör afslöppun og sköpun í senn.

 

Þegar þú ert ánægð(ur) með útkomuna, skilarðu hlutnum aftur til okkar. Við glerjum og brennum hann fyrir þig – tilbúinn til afhendingar viku síðar. 

 

Takeaway Noztra er líka vinsælt fyrir afmæli, vinahittinga og aðra viðburði – skemmtileg og skapandi leið til að gera daginn sérstakan.

Skapandi upplifun
á þínum stað

Noztra – skapandi upplifun á þínum stað. Tilvalið fyrir vinnustaði, hópefli eða stærri viðburði. Við komum með keramik, liti og skapandi andrúmsloft. Fullkomið fyrir vinnufélaga, hátíðir og viðburði. Við sjáum um allt – uppsetningu, leiðbeiningar og frágang.

 

Að smiðju lokinni förum við með hlutina, glerjum & brennum. 5–7 dögum síðar afhendum við þá tilbúna.


Frekari upplýsingar í tölvupósti – [email protected]

Leiraðu þinn eigin hlut

Alla þriðjudaga kl 16 í sumar!

Athugið að þessi viðburður er fyrirfram greiddur, smelltu á hnappinn „panta borð“ fyrir nánari upplýsingar.

 

Allt sem þarf til handmótaðrar leirgerðar. Vertu með okkur í skemmtilegri leirvinnustofu þar sem þú lærir grunnatriði handmótunar og býrð t.d. til þinn eigin bolla! Með því að nota pulsu, kúlu eða fletja út tækni getur þú skapað hvað sem hugurinn girnist.

 

Eftir vinnustofuna munum við brenna hlutinn þinn í ofninum okkar og þú getur síðan komið aftur tveimur vikum seinna til að glerja og mála hann í uppáhalds litunum þínum. Fullkomið fyrir byrjendur – engin reynsla nauðsynleg!

 

Vinsamlegast athugið að það er 15 ára aldurstakmark í leirvinnustofur.